Fara beint í efni

Framleiðsla erlendis fyrir íslensk fyrirtæki

Við finnum verksmiðjuna.

Nordic Dynamic er íslenskt fyrirtæki sem lætur framleiða vörur erlendis, fyrir eigið vörumerki og fyrir önnur fyrirtæki. Við þekkjum framleiðendurna og förum á staðinn þegar verkefnið kallar á það.

Eigendur Nordic Dynamic á gólfi saumastofu ásamt fulltrúa framleiðandans
Verksmiðjuheimsókn Guangdongnóv 2026

Við höfum farið á staðinn

Myndir af gólfinu

Myndirnar af gólfinu tókum við sjálfar, í verksmiðjum og á Canton Fair.

Sýningarhöll Canton Fair í Guangzhou með borðum sýnenda
Canton Fair Guangzhounóv 2026
Saumakonur við vinnu á gólfi saumastofu
Saumastofa Guangdongnóv 2026
Prentað blómamynstur á efni, haldið í hendi
Prentað efni Guangdongnóv 2026

Okkar eigin framleiðsla

50.000+

Snoozle er okkar eigin vara, hönnuð á Íslandi og framleidd í Kína. Yfir 50.000 eintök hafa selst á Íslandi og erlendis síðan 2013 og varan fæst í öllum apótekakeðjum landsins.

Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

Þú veist alltaf hvar pöntunin stendur og ekkert fer í framleiðslu án þíns samþykkis.

  1. Fyrirspurn

    Þú lýsir vörunni, magninu og hvenær hún þarf að vera komin.

  2. Framleiðendur og verð

    Við finnum framleiðendur sem passa og berum saman verð og skilmála.

  3. Sýnishorn

    Sýnishorn er sent til Íslands. Ekkert fer í framleiðslu fyrr en þú samþykkir.

  4. Framleiðsla og eftirlit

    Við fylgjum framleiðslunni eftir og látum skoða vöruna áður en hún fer af stað.

  5. Heim til Íslands

    Við skipuleggjum flutning og tollafgreiðslu heim.

Lesa meira

Plíserað bleikt efni í sýningarsal framleiðanda
Sýningarsalur Guangdongnóv 2026

Um okkur

Við þekkjum verksmiðjurnar.

Það er munur á að panta af netinu og að þekkja framleiðandann. Við höfum heimsótt verksmiðjurnar sem við vinnum með og förum aftur þegar stærð eða eðli verkefnis kallar á það.

Lesa meira um okkur

Fyrirspurn

Hvað vantar þig?

Sendu okkur lýsingu og áætlað magn. Við finnum framleiðanda og komum með verð.

Myndir, teikningar eða PDF, samtals allt að 4 MB.
Á að sérmerkja vöruna?